Handbolti - Nóg að gera um helgina

24.okt.2007  10:15

Nóg er að gerast þessa helgi eins og aðrar helgar í handboltanum í vetur.

Unglingaflokkur karla spilar hér heima á laugardaginn við HK klukkan 15.00. Unglingaflokkur kvenna fer á föstudeginum til Reykjavíkur og keppir við Fylki klukkan 18.00.

6. flokkur drengja og stúlkna fara báðir upp á land til að keppa í Íslandsmóit. Unnur fer með 30 manna hóp drengja, alls 4 lið sem keppa í Kaplakrika, íþróttahúsi FH. Á sama tíma fer ÓIa Heiða með 25 stúlkur í þremur liðum sem keppa í íþróttahúsi HK í Digranesi.

Kvetjum við alla til að kíkja á leikina í yngri flokkunum og kvetja ÍBV til sigurs.