Handbolti - Happdrætti handboltans

17.okt.2007  09:22
Handboltafólkið okkar í ÍBV mun í kvöld ganga í hús og selja happdrættismiða til styrktar vetrarstarfinu. Vestmannaeyingar eru hvattir til að taka vel á móti íþróttafólkinu og stuðningsmönnum félagsins. Fjöldi góðra vinninga er í boði. Mfl. karla hefir átt á brattann að sækja í byrjun keppnistímabils, en með samstilltu átaki er hægt að hjálpa liðinu yfir erfiðasta hjallann, Eyjamenn sýnum samstöðu og styðjum ÍBV.