Fótbolti - Jón Óli fékk viðurkenningu.

09.okt.2007  11:13

Jón Ólafur Danielsson knattspyrnuþjálfari hjá ÍBV Íþróttafélagi fékk viðurkenningu frá Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands um síðustu helgi.

Viðurkenningin er fyrir vel unnin störf við þjálfun ungmenna. Þetta er mikill heiður fyrir Jón Óla og störf hans. ÍBV Íþróttafélag óskar honum til hamingju með útnefninguna, og væntir mikils af störfum hans fyrir félagið.