Handbolti - Fjölliðamót um helgina

08.okt.2007  17:22

Stórt handboltamót verður um helgina hér í Eyjum, þegar 400 handboltapeyjar frá mörgum félögum etja kappi. Mótið er fyrsta fjölliðamót vetrarins í 5. flokki. Leikið verður alla helgina. Fimmta flokks stelpur úr ÍBV munu halda norður yfir heiðar og leika á Akureyri á sama tíma.

Það er alltaf líf og fjör í íþróttunum hjá ÍBV Íþróttafélagi, nú þegar knattspyrnuvertíðinni er nýlokið tekur handboltinn við, auk mfl. karla tekur ÍBV þátt í Íslandsmótum í öllum yngri flokkum, bæði stelpna og stráka.