Fótbolti - Frítt á leik ÍBV og Fjölnis

27.sep.2007  10:28
Glitnir og Eignarhaldsfélagið Fasteign bjóða Eyjamönnum og gestum frítt á leik ÍBV og Fjölnis á morgun kl. 17.15. KL.16.30 mun Þorkell Sigutjónssson taka fyrstu skóflustunguna að nýju knattspyrnuhúsi við Týsheimilið, ásamt nokkrumiðkendum af yngstu kynslóðinni hjá ÍBV. Þar á undan eða klukkan 15.00 fer fram í sal 2 í Íþróttamiðstöðinni lokahóf Yngri flokkana fyri sumarið í fótboltanum. Að leik loknum eða klukkan 20.30 fara svo fram í Höllinni sumarlok ÍBV þar sem miklu starfssumri hjá félaginu verður lokað með pompi og prakt.