Handbolti - FRÍTT Á VÖLLINN

13.sep.2007  14:10

Á laugardaginn n.k. verða tveir stórleikir á vegum félagsins. Fyrri leikurinn er kl. 14.00 og er á Hásteinsvelli en þá fá eyjamenn Grindvíkinga í heimsókn. Er um gríðarlegan mikilvægan leik að ræða og verður ÍBV að vinna sinn leik.

Hins vegar er það fyrstu leikur meistaraflokksliðs ÍBV í handbolta í N1-deildinni en þeir taka á móti Frömurum og hefst leikurinn kl 17.00 og er í Íþróttahúsinu. Gaman verður að fylgjast með peyjunum okkar í þessum fyrsta leik.

Nokkur góð fyrirtæki hér í bænum hafa ákveðið að bjóða bæjarbúum á baða leikina en þessi fyrirtæki eru: Fiskverkun VE, Godthaab í Nöf, N1, Ísfélagið, Vinnslustöðin Sparisjóði Vestmannaeyja og Glitnir. Viljum við þakka þessum frábæru fyrirtækjum fyrir þennan stuðning og nú er bara að fjölmenna á völlinn.