Fótbolti - 3. flokkur kvenna: Úrslitakeppnin hefst í dag

25.ágú.2007  12:02
Nú klukkan 13:00 hefst úrslitakeppnin í 3. flokki kvenna 7 manna bolta, með leik ÍBV og Sindra á Týsvelli. ÍBV leikur síðan aftur 15:20 gegn Stjörnunni á sama velli.

Á morgun eru svo tveir leikir hjá ÍBV stelpunum. Klukkan 9:30 spila þær gegn KS/Leiftri og svo aftur klukkan 11:50 gegn KA.

Eyjamenn eru hvattir til að mæta og fylgjast með stelpunum. Aldrei að vita nema ÍBV eignist sína fyrstu Íslandsmeistara í langan tíma.

ÁFRAM STELPUR !