Fótbolti - 1 deild: Góður sigur fyrir norðan

24.ágú.2007  20:49
Strákarnir báru í kvöld sigurorð af KA mönnum fyrir norðan með tveimur mörkum gegn engu. Fyrri hálfleikur var markalaus en í síðari hálfleik skoraði Atli með skalla og Jeffsie síðan með góðu skoti inní teig stöngin inn. Varnarleikur liðsins var mjög góður í leiknum og fengu KA menn ekki eitt einasta færi.

Því miður fyrir strákana sigruðu Fjölnismenn og Fjarðabyggð sína leiki þannig að staðan er alveg eins og hún var fyrir þessa umferð. Meira um leikinn síðar.

Mynd með frétt: Júlíus Ingason