Fótbolti - 2. flokkur karla: Bikardraumurinn búinn

15.ágú.2007  15:50
Strákarnir í 2. flokki töpuðu í gær fyrir Þórsurum í undanúrslitum bikarsins en leikurinn fór fram á Akureyri. Þórsarar leika í B-riðli en ÍBV í C-riðli og Þórsarar því taldir sigurstranglegri. Strákarnir okkar voru þó ekkert á því, mættu gífurlega vel stemmdir til leiks og gáfu Þórsurunum ekkert eftir.

Leikurinn var í járnum nær allan tímann en þegar 20 mínútur voru til leiksloka brutu gestirnir ísinn. Gauti Þorvarðarson lék þá glæsilega í gegnum vörn Þórs og skaut að marki, markmaðurinn varði en Gauti fylgdi á eftir og skoraði gott mark, 0-1 fyrir ÍBV. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka þá jöfnuðu Þórsarar eftir varnarmistök í vörn ÍBV og tveimur mínútum síðar gerðu strákarnir sig aftur seka um varnarmistök og Þórsarar komnir yfir 2-1. Jón Óli lagði þá allt kapp á sóknarleikinn og fór í leikkerfið 3-2-5. Það lukkaðist heldur betur vel því á 90. mínútu jöfnuðu Eyjamenn og var þar að verki Birkir Hlynsson með glæsilegum skalla eftir glæsilega fyrirgjöf frá Ingólfi Einissyni. Minnstu munaði svo að strákarnir stælu sigrinum í uppbótartíma en fyrirgjöf sleikti ennið á tveimur sóknarmönnum ÍBV sem voru komnir í dauðafæri.

Leikurinn fór því í framlengingu og eftir einungis 50 sekúndur fengu strákarnir á sig enn eitt klaufamarkið í leiknum og staðan orðin 3-2 fyrir Þór. Í lok framlengingarinnar urðu strákarnir svo fyrir miklu áfalli er besti maður þeirra í leiknum, varnarmaðurinn Kristinn Baldursson þurfti að fara meiddur af velli. Þeir börðu sig þó saman og Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði glæsilegt mark á 113. mínútu og jafnaði 3-3. Þórarinn fagnaði markinu ógurlega, lyfti treyjunni upp og dómarinn gaf honum gult spjald fyrir. Það hefði kannski verið í lagi nema fyrir þær sakir að þetta var annað spjald Þórarins í leiknum og var hann því rekinn af velli. Fyrra spjaldið fékk hann fyrir kjaftbrúk við dómarann og því ljóst að Þórarinn gerði sig sekan um mikið dómgreindarleysi í leiknum í gær. Þórsarar gengu svo á lagið, einum fleiri, og skoruðu strax mínútu eftir brottvísun Þórarins. Þeir gulltryggðu svo sigurinn á lokamínútunum þegar Eyjapeyjar voru nær allir komnir í sóknina. Lokastaðan 5-3 fyrir Þór en strákarnir geta borið höfuðið hátt eftir þessa frammistöðu.

Jón Óli þjálfari sagðist mjög sáttur við leikinn og að menn hefðu lagt sig allan fram. ,,Ég var auðvitað mjög ósáttur við Þórarinn að láta reka sig útaf með svona klaufaleg spjöld en það er vonandi að hann læri af þessu. Einnig var ég virkilega ósáttur við dómgæsluna í leiknum, sem var á köflum furðuleg. Þeir komust upp með það allan leikinn að keyra inní bakið á mínum mönnum þannig að það var mjög erfitt að halda boltanum innan liðsins. Svo ef við ýttum með bakinu á móti til að reyna að standa hrindingarnar af okkur, þá dæmdi dómarinn bara aukaspyrnu á okkur. Svo fékk einn leikmaður okkar gult spjald vegna þess að hárbandið hans datt niður af hausnum á honum og niður á háls í einu skallaeinvíginu, alveg hreint með ólíkindum. Það skiptir sköpum í svona leikjum að fá þá á heimavöll bara hvað dómgæslu varðar. Á útivelli hefðu Þórsarar aldrei komist upp með svona spilamennsku. En ég var mjög ánægður með strákana og þeir eiga hrós skilið. Þetta var bara ekta bikarleikur, gríðarlega spennandi og úrslitin gátu fallið báðum liðum í vil," sagði Jón Óli.