Fótbolti - Bilun í neti: Engin útsending í kvöld - hægt verður að fylgjast með á Rás 2 !

10.júl.2007  16:47
Vegna vandræða með netsamband hérna í Týsheimilinu þá verður því miður ekki hægt að senda leikinn út í beinni útsendingu í kvöld. Undanfarnar vikur höfum við verið að vinna í að bæta tækjakost okkar í samvinnu við Trommuheilana, stuðningsmannaklúbb ÍBV, svo að unnt verði að senda út í betri gæðum sem og að fleiri geti hlustað í einu. Þessi vinna er á lokastigi en einhverra hluta vegna hefur nýji routerinn okkar látið eitthvað leiðinlega síðustu daga. Við biðjumst velvirðingar á þessu og vonandi kemst þetta í lag sem allra allra fyrst. Áhugasamir geta þó fylgst með á Rás 2 sem mun fylgjast með gangi mála