Fótbolti - Þakkir til stuðningsmanna

04.júl.2007  13:58
Stuðningsmenn ÍBV fjölmenntu á Grindavíkurvöll í fyrradag. Allan leikinn voru strákarnir kvattir áfram af áhorfendum og í fyrsta skipti í langan tíma fengu viðstaddir á tilfinninguna að gamla góða ÁTVR (Átthagafélag Vestmannaeyinga í Reykjavík) væri komið aftur til leiks eftir (alltof) langa fjarveru. Leikmenn ÍBV, þjálfari og stjórn vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra stuðningsmanna sem lögðu leið sína á Grindavíkurvöll í gær og vonast eftir slíkum stuðningi í hverjum leik hér eftir. Þótt úrslitin hafi ekki farið eins og menn vonuðu þá er mikilvægt að áhorfendur mæti vel og styðji strákana auk þess sem það lífgar að sjálfsögðu uppá stemninguna í leikjum. Takk stuðningsmenn!