Fótbolti - Jeffsy á láni frá Örebro

28.jún.2007  07:51
ÍBV og Örebro hafa náð samkomulagi um að Ian Jeffs muni koma á láni út tímabilið frá þeim sænsku. Jeffsy hefur fengið fá tækifæri í sumar með Örebro eftir að hafa verið fastamaður í liðinu í fyrra. Jeffsy kemur til landsins um helgina og hefur leik með ÍBV um leið og félagaskiptaglugginn opnar aftur núna í júlí.