Handbolti - "Götuboltamót" á laugardaginn

20.jún.2007  22:31
Á laugardaginn n.k. verður haldið "Götuboltamót" í fótbolta. Um er að ræða mót þar sem er spilað 4 á móti 4 á gervigrasinu við Barnaskólann og hefst mótið kl. 13.00. Liðum verður skipt niður, annars vegar 13 ára og yngri fyrir stelpur og 13 ára og yngri strákar og hins vegar 14 ára og eldri stelpur og og 14 ára og eldri strákar. Mótsstjóri verður Jonah Long, leikmaður ÍBV.