Fótbolti - 1 deild: Stjörnumenn mæta til Eyja í kvöld

19.jún.2007  13:03
Stjörnumenn mæta til Eyja í dag og leika við heimamenn í ÍBV. Stjörnumönnum hefur gengið þokkalega í deildinni það sem af er. Liðið situr í sjötta sæti í deildinni, einu sæti og einu stigi á eftir Eyjamönnum. Ljóst er að um hörkuleik verður því að ræða á Hásteinsvelli í kvöld og ekki laust við að nokkur spenningur ríki í Eyjum fyrir leikinn enda Eyjapeyjar búnir að sigra í síðustu þremur leikjum sínum og eru á sannkallaðri sigurbraut. Leikurinn verður flautaður á kl. 20:00.

Strákarnir voru að koma úr hádegismat og Þórarinn Ingi Valdimarsson, eða Tóti eins og hann er stundum kallaður, kíkti aðeins á okkur hérna á ritstjórninni. Tóti var ekki í hópnum í síðasta leik enda missti hann ,,óvart" af æfingu um daginn. Hann er hins vegar kominn aftur inn og verður í byrjunarliðinu í kvöld í vinstri bakverði. Tóta líst vel á að keppa í kvöld.

,,Þetta verður hörkuleikur og skemmtilegur. Það eru frábærar aðstæður hér í dag og verður gaman að keppa á móti Stjörnunni. Við vitum að þeir hafa verið góðir uppá síðkastið, þeir hafa unnið núna tvo leiki í röð þannig að það er mikið sjálfstraust í þeirra herbúðum, rétt eins og er hjá okkur enda erum við enn taplausir."

Hvernig verður leikurinn lagður upp og hvað þurfiði helst að varast?
,,Það er bara þetta sama, berjast eins og menn og reyna að sækja hratt. Við þurfum að varast mjög hraðann þeirra, þeir eru mjög hraðir sóknarlega og við verðum að reyna að stoppa það. Guðjón Baldvins er hættulegur þarna frammi og við munum láta hann finna til tevatnsins."

Hvernig fer leikurinn?
,,Þetta dettur okkar megin, 2-0. Bjarni Hólm skorar með skalla og Atli setur eitt eftir frábæra sendingu frá mér," sagði Tóti að endingu og fór svo beint í símann og hringdi í sjúkraþjálfarann sem ætlar að mixa hann fyrir leikinn.