Fótbolti - 8 flokkur karla: Æfingar hefjast á miðvikudaginn

18.jún.2007  12:23
Fótboltaæfingar hefjast hjá yngstu strákunum í 8. flokki (4-6 ára) á næsta miðvikudag kl 11:00 á Týsvelli, ekki Þórsvelli eins og áætlað var. Í sumar verða æfingar hjá þessum aldursflokki á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á Týsvelli og hefjast stundvíslega kl 11:00 líkt og á síðasta ári. Æfingarnar verða í 40 mínútur og vegna matarhlés á leikskólunum er mjög mikilvægt að foreldrar komi strákunum strax í leikskólana eftir æfingu, sérstaklega þeim sem eru á Kirkjugerði, svo matartími raskist ekki um of. Þjálfari verður Einar H. Sigurðsson og aðstoðarþjálfari Kristgeir Orri Grétarsson.