Fótbolti - 1 deild: KA menn mættir til Eyja - Seinkun til 14:15

16.jún.2007  14:02
Vegna mikilla anna útaf Vöruvalsmóti 5. flokks kvenna í knattspyrnu hefur síðan lítið verið uppfærð undanfarna daga. Það stendur þó allt til bóta enda mótinu lokið.

Eyjamenn spila við KA-menn í fyrstu deild karla nú í dag. Leikurinn var settur á klukkan 14 en seinkar um 15 mínútur og hefst því 14:15. Þetta er tilkomið vegna seinkunar dómara hingað til Eyja.

Gott veður er í Eyjum, rigning dagsins er búin og vindur lítill. Sólin er meira að segja farin að gægjast á milli skýjanna. Pistill um leikinn kemur seinnipartinn.