Fótbolti - VISA-bikar kvenna: ÍBV-Afturelding í kvöld

12.jún.2007  15:06
Annað kvöldið í röð verður VISA-bikar leikur á milli ÍBV og Aftureldingar. Að þessu sinni eru það stelpurnar sem láta að sér kveða, en ÍBV ákvað að senda meistaraflokk kvenna til leiks í bikarnum. Eins og von er þá munu ungar og efnilega stelpur leika í kvöld og flestallar þreyta frumraun sína með meistaraflokki. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 20:00 og hvetjum við að sjálfsögðu alla til að leggja leið sína á völlinn í kvöld og bera ungar og efnilegar Eyjastelpur augum.