Fótbolti - Getraunaseðill fyrir leiki sumarsins í fótboltanum

08.maí.2007  23:10
Leikmenn meistara og 2.flokks karla eru byrjaðir að safna fyrir næstu æfingaferð með skemmtilegan getraunaleik. Tippað er á alla leiki meistaraflokks ÍBV í sumar. Þrjú stig eru gefin fyrir rétt úrslit og lokatölur en eitt stig fyrir rétt úrslit. Aðalvinningur er 50.000 inneign í ferð frá Úrvali Útsýn. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja strákana og taka þátt í léttum leik í leiðinni geta fengið miða í Týsheimilinu eða hjá leikmönnum.