Fótbolti - Upphitunarpartý fótboltans á Laugardaginn kl 21:00

03.maí.2007  11:49
Þá er komið að fyrsta upphitunarparty Knattspyrnunar sem verður árviss viðburður í eyjum,
undanfarnar vikur hefur 1.deildar lið íbv verið að þroast fyrir átökin í deildinni og stuðningsmannafélögin verið að gera sig tilbúinn í slaginn þess vegna var áhveðið að gera þetta stór glæsilega kvöld svona til að þjappa liðinu og stuðningsmönnum saman og gera þetta að skémtun sem boltin á að vera.
hér fyrir neðan má sjá dagsklrá kvöldsins.

Dagskrá
Heimir Hallgrímsson þjálfari kynnir stuðningsmönnum liðið í sumar, andstæðinga ÍBV og fleira.
Nýr ÍBV búningur kynntur .
Stuðningsmannaklúbburinn afhendir ársmiða og nýja ÍBV búninginn til félaga.
Trommuheilarnir opna og kynna nýja stórglæsilega heimasíðu www.ibvfan.is og starfið framundan.
Nýtt lukkudýr ÍBV lætur sjá sig í fyrsta skipti.
Eddi trúbador verður í banastuði eitthvað frameftir kvöldi.
Á veggjum verður myndasýning frá gömlum leikjum ÍBV.

Týsheimilið
Allir velkomnir - engin aðgangseyrir