Fótbolti - Bjarni Hólm til GAIS á reynslu

04.jan.2007  08:30

Hólmarinn sjálfur heldur til reynslu hjá GAIS í Gautaborg á mánudag og verður þar í eina viku til reynslu. Þetta hefur staðið til í svolítinn tíma en er nú endanlega staðfest. Á sama tíma og Bjarni verður þarna verður Eyjólfur Héðinsson Fylkismaður þarna einnig til reynslu, en fyrir hjá GAIS er fyrrverandi leikmaður Watford Jóhann Birnir Guðmundsson.

Nú þegar sól hefur tekið að hækka á lofti styttist í fyrstu æfingaleikina á þessu ári og verður ÍBV liðið á ferðinni á fastalandinu 19 og 20 janúar er það leikur 2 leiki.

2. flokkur karla tekur þátt í riðlakeppni Íslandsmótsins innanhúss um helgina leikið verður á laugardaginn í Kaplakrika í Hafnarfirði og hefst mótið kl. 14.00. Með ÍBV í riðli eru FH, Grindavík, Selfoss og KR.