Handbolti - Dósasöfnun í dag

02.jan.2007  09:48

Hin árlega Dósasöfnun er í dag, þriðjudag, og má vænta að ÍBV-fólk banki upp á hjá fólki í dag á milli kl. 18-20. Það er vonandi að Eyjamenn taki vel á móti okkar fólki og gefi okkur dósir, flöskur og gler til söfnunarinnar.

Þau sem að verða ekki heima á þessum tíma og vilja gefa til söfnunarinnar geta haft samband við Valtý í síma 698-2914.

Okkur vantar síðan alltaf krakka og fólk til að aðstoða okkur og því hvetjum við þau ykkar sem gætuð aðstoðað okkur að mæta í loðnuflokkunarstöð Vinnslustöðvarinnar á milli kl. 17:30 og 18:00 í dag.

Handknattleiksdeild ÍBV