Handbolti - Nóg af leikjum um helgina

24.nóv.2006  10:52

Um helgina verður fjöldi leikja háður hér í Eyjum. M.a. leika drengirnir okkar í mfl. gegn Haukum 2 á laugardag kl. 15:00. Við hvetjum fólk til að gera sér ferð í íþróttahúsið um helgina og bera okkar unga og efnilega handboltafólk augum.

Við óskum líka öllum þessum liðum góðs gengis um helgina.

Nánar má sjá um leikina hér og einnig hér fyrir neðan:

Laugardagur 25/11 ´06

kl. 12.00 í gamla sal SS bikar í 4. fl kvenna b lið Í.B.V : Víkingur

kl. 13.00 í gamla sal 4. fl kvenna a lið Í.B.V : Víkingur

kl. 13.00 í sal sal 3 ungl.fl karla Í.B.V : Fjölnir

kl. 15.00 í gamla sal mfl. karla Í.B.V : Haukar 2

kl. 15.00 í sal 3 4. fl kvenna b lið Í.B.V : Víkingur

kl. 17.00 í gamla sal ungl.fl kvenna Í.B.V : Stjarnan

Sunnudagur 26/11 ´06

kl. 14.00 í gamla sal 2.fl karla Í.b.V : FH