Handbolti - ÍBV-Grótta í kvöld kl. 19:00

18.okt.2006  10:09

SS-Bikarinn

Strákarnir okkar leika gegn Gróttu í kvöld kl. 19:00 í SS-Bikar karla. Við hvetjum alla Eyjamenn til að mæta og styðja við bakið á strákunum okkar. Þessi lið áttust við í deildinni sl. sunnudag og þá höfðu okkar drengir betur með einu marki í æsispennandi leik. Við vonum að þetta verði jafn spennandi leikur í kvöld og endi nátturlega á sömu lund.