Handbolti - Æfingaleikir um helgina

08.sep.2006  15:48

Stelpurnar í Eyjum og strákarnir upp á landi

Um helgina leika stelpurnar þrjá æfingaleiki gegn Gróttu og verður sá fyrsti í dag um kl.18:30 og síðan væntanlega um 10:30 og 15:00 á morgun laugardag. Allir leikirnir fara fram í Eyjum. Alfreð okkar Finnson er þjálfari Gróttu og er hann og Eva mætt til Eyja með stelpurnar sínar sem og erfingjann Gísla Örn. Við bjóðum þau velkomin heim að nýju.

Strákarnir leika í kvöld gegn Aftureldingu og á morgun gegn Val og fara báðir leikirnir fram upp á landi.