Fótbolti - 2. flokkur gegn Víkingi Ólafsvík í kvöld á Helgafellsvelli kl. 18.00

01.sep.2006  10:33

- Njarðvík heima á mánudag
Úrslitaleikir
Peyjarnir í 2.fl. eiga 2 leiki eftir í riðlinum og er annar þeirra í kvöld gegn Víkingum frá Ólafsvík. Víkingum hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel í sumar, en við lentum í bölvuðu basli í fyrra leiknum í Ólafsvík og því er eins gott fyrir menn að koma á tánum til leiks og leggja sig 100% fram. Á mánudaginn er síðan leikur gegn lærisveinum Freys Sverrissonar í Njarðvíkurliðinu hefst leikur einnig klukkan 1800 og verður væntanlega líka á Helgafellsvellinum. Með sigri í báðum þessum leikjum á flokkurinn séns á að komast í umspil um að komast upp um riðil og munu menn þar mæta Þór frá Akureyri í tveimur leikjum, heima og heiman. – Fólk er hvatt til að fjölmenna að vellinum í kvöld og á mánudag, ekki er ráðlegt að mælast til að þess að fólk mæti á völlinn, því í þessu bæjarfélagi gætu margir misskilið það
Áfram ÍBV alltaf alls staðar og út um allt

myndirnar með fréttinni eru frá Fótbolta.net og teknar af mömmu hans Maggi ritstjóra - takk fyrir - www.fotbolti.net - það gerist ekki betra í boltanum