Handbolti - Áttu gamla tölvu er þú notar ekki?

30.ágú.2006  12:38

Við leitum að gömlum tölvum og skjáum sem fólk er hætt að nota og væri tilbúið að gefa til ÍBV. Þessar tölvur þurfa ekki að vera mjög öflugar en hugsunin er að nota þær til að leikmenn og þjálfarar geti tengst internetinu og framkvæmt einfaldar tölvuvinnslur.

Þau ykkar sem getið aðstoðað okkur í þessu er bent á að hafa samband við Hlyn í síma 897-1181.