Handbolti - Siggi Braga mun leiða vagninn í vetur

23.ágú.2006  23:41

Siggi Braga mun leika á fullu með okkur í vetur og eru það miklar gleðifregnir þar sem hann hefur verið hjartað í liðinu á undanförnum árum.

Við vitum að Siggi á eftir að standa sig vel með okkur í vetur og vera duglegur að leiða ungu drengina rétta veginn í boltanum.

Við munum væntanlega segja ykkur frekari fréttir af leikmannamálum hjá handboltaliðunum á föstudaginn.