Handbolti - Andrea Löw mun leika með ÍBV

16.ágú.2006  11:41

Ungverska stúlkan Andrea Löw hefur gengið til liðs við okkur. Hún er 26 ára að aldri og hefur leikið síðastu ár með Cornexi í Ungverjalandi sem meðal annars varð Evrópumeistari félagsliða á síðasta tímabili. Hún getur leikið í vinstra horni sem og á miðju. Þar er á ferðinni spræk stúlka sem eflaust á eftir að reynast okkur vel í baráttunni í vetur.

Við bjóðum hana velkomna til ÍBV og vonum að hún eigi eftir að njóta dvalar sinnar hér.

Við munum síðan væntanlega segja ykkur frekari fréttir af leikmannamálum hjá okkur á morgun eða mánudag.