Handbolti - Jói og Leifur leika með í vetur

15.ágú.2006  15:24

Jóhann Ingi Guðmundsson, markmaðurinn snjalli hefur ákveðið að hefja leik að nýju eftir árs fjarveru frá handbolta. Það hefur Leifur Jóhannesson snúið aftur eftir árs dvöl í Breiðholtinu hjá ÍR.

Við vitum að þeir munu styrkja hópinn mikið fyrir átökin í annarri deildinni í vetur og eflaust sýna snildartakta eins og þeim er von og vísa.

Við bjóðum þá velkomna aftur til liðs við ÍBV.

Við munum flytja ykkur frekari fréttir af leikmannamálum á morgun.