Handbolti - Tékknesk stúlka til ÍBV

11.ágú.2006  00:51

Til liðs við kvennalið ÍBV hefur gengið Pavla Nevarilová sem er tékkneskur línumaður. Hún er 26 ára og kemur frá tékknesku meisturunum Sport Slokov Veselí n.M. Hún á baki nokkra landsleiki með tékkneska landsliðinu og er núverandi landsliðsmaður.

Við bjóðum hana velkomna í ÍBV og við vonum að hún eigi eftir að reynast okkur vel í vetur.

Við munum flytja ykkur frekari fréttir af leikmannamálum eftir helgi og væntanlega verður tilkynntur nýr þjálfari karlaliðsins nk. mánudag.