Handbolti - Renata snýr aftur

10.ágú.2006  10:48

Renata Horvath mun leika með okkur í vetur en hún hugðist leika með ungverska liðinu Vac en fékk "heimþrá" og úr varð að við munum leigja hana frá Vac í tvö ár.

Hún reyndist okkur vel síðasta vetur og á eflaust eftir að reynast okkur einnig vel í vetur. Við munum því halda í Renötu og Pövlu frá síðasta vetri af þeim erlendu leikmönnum sem voru þá.

Við bjóðum Renötu velkomna "heim".

Frekari fréttir af leikmannamálum munu verða tilkynntar á morgun og nýr þjálfari karlaliðsins verður kynntur til sögunnar á mánudaginn.