Handbolti - Valentina Radu gengin til liðs við ÍBV

09.ágú.2006  15:06

Rúmensk skytta, Valentina Radu, hefur gengið til liðs við kvennalið ÍBV. Valentina er 25 ára örfhent skytta og á að baka nokkra A-landsleiki auk leikja með yngri landsliðum Rúmeníu. Hún lék á síðasta ári með Rulmentul Brasov sem varð rúmenskur meistari auk þess að vinna Áskorendakeppni Evrópu. Þess má geta að Simona sem var með okkur á síðasta tímabili gekk einmitt til liðs við Rulmentul Brasov.

Það gekk ekki þrautalaust að fá hana til liðs við ÍBV þar sem m.a. Hypo frá Austuríki reyndi að fá hana frá okkur, en sem betur fer tógst þeim það ekki.

Við væntum mikils af Valentinu í vetur og höfum mikla trú á því að hún eigi eftir að standa sig vel með okkur.

Við bjóðum hana velkomna í ÍBV.

Fleirri frétta af leikmannamálum og þjálfaramálum er að vænta næstu daga.