Fótbolti - Hópferð á Víkingur - ÍBV á fimmtudag

08.ágú.2006  21:20

Ákveðið hefur verið að leigja Fokker-vél á leikinn gegn Víkingum í Víkinni á fimmtudag áætlað er að fara frá Eyjum seinnipartinn og beint heim að leik loknum. Boðið verður upp á hópferð á leikinn gegn vægu gjaldi og verður innifalið í því miði á völlinn, rúta til og frá velli og að sjálfsögðu flug fram og til baka. Miðaverði verður stillt í hóf og er áætlað kr. 5.000,- á pakkann - Áhugasamir geta sett sig í samband við Oddnýju í símum 481 2060 eða 693 1597.

Áfram ÍBV alltaf og alls staðar.