Fótbolti - Bjarni Hólm og Hrafn báðir í U-21 hópnum

03.ágú.2006  18:15
Tveir leikmenn ÍBV voru valdir í 18 manna leikmannahóp U-21 liðsins sem mætir austurríkismönnum ytra þann 16 ágúst n.k. Hrafn markmaður er í hópnum en hann á að baki 2 leiki með liðinu og svo kemur Bjarni Hólm inn sem nýliði en hann þurfti síðast að draga sig út úr leikmannahópnum vegna meiðsla. Það er vonandi að strákunum gangi vel í þessum leikjum en á eftir þessum leik er leikur hér á heimavelli gegn Ítölum þann 1. september, ef ég man rétt.