Fótbolti - Guðlaugur Baldursson hættir sem þjálfari ÍBV

02.ágú.2006  18:02
Stjórn Knattspyrnudeildar ÍBV-íþróttafélags og Guðlaugur Baldursson hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi þeim sem er í gildi milli viðkomandi aðila að beiðni þess síðar nefnda. Guðlaugur telur sig komin að ákveðnum lokapunkti við þjálfun liðsins og telur að það sé liðinu fyrir bestu að nýr maður verði fenginn til starfans.
Knattspyrnudeild ÍBV virðir ákvörðun Guðlaugs og heiðarleika og þakkar honum frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Það hefur verið okkur sönn ánægja að starfa með Guðlaugi og við óskum honum alls hins besta í öllu því
er hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

með vinsemd og virðingu

f.h. knattspyrnudeildar ÍBV

Viðar Elíasson, formaður