Fótbolti - Keflavík í kvöld

13.júl.2006  19:18

Bo snýr aftur í byrjunarliðið

Leikið verður í Bítlabænum í kvöld gegn heimamönnum, sem eru jafnir okkur að stigum. Andrew Mwesigwa er í leikbanni, svo er búið að hringja frá Úganda og kanna með hvort Andrew verði mögulega klár í landsleiki með Úganda í ágúst og september. Andri Ólafs eitthvað tæpur en aðrir eru held ég barasta klárir í slaginn.Vænta má hörkuleiks eins og flestir leikir liðanna hafa verið í gegnum tíðina. Byrjunarlið okkar er þannig skipað: Hrafn, Joanh, Palli fyrirliði, Bjarni Hólm, Matt, Thomas, Bjarni Geir, Atli, Pétur, Ulrik, Bo.