Fótbolti - Mark Schulte að snúa aftur

28.jún.2006  20:19

Nú á næstunni kemur til baka til okkar eftir tveggja ára dvöl erlendis og spilamennsku með Columbus Crew (USA)og Montevideo Wanderers (Úrúgvæ) hinn knái varnarmaður Mark Schulte (fæddur 4. okt. 1977). Schulte sem er nú í Úrúgvæ heldur til USA á laugardag en mun þar hefja pökkun fyrir Íslandsferð. Hann hafði samband sjálfur og lýsti yfir áhuga á að koma hingað aftur að spila. Hann kemur því hingað á næstunni með það að markmiði að spila með okkur til loka árs 2007.

Þá er staðan þannig að Jonah Long, Andrew Mwesigwa og Mark Schulte munu allir leika með okkur aftur á næsta ári að öllu óbreyttu. Verið er að skoða 2 leikmenn í viðbót og þá með það í huga að þeir komi til liðs við liðið fyrir næsta keppnistímabil en þessi mál eru öll á frumstigi.