Handbolti - Áhugafólk hvatt til að mæta

20.jún.2006  15:22

Á fimmtudag, kl. 18:15, ætlar áhugafólk um mfl. handboltans að hittast í Týsheimilinu og ræða félagsstarfið fyrir komandi keppnistímabil.

Þar er ætlunin að við reynum að skapa öflugan hóp fólks sem tilbúið er að taka þátt í starfinu. Fólk sem tilbúið er að starfa t.d. á Bryggjudeginum, Þjóðhátíðinni (skran sala, pylsusala, innrukkun), Vor í Eyjum o.sframv.

Þá er einnig ætlunin að leita að fólki sem tilbúið er að taka að sér að leiða ákveðin verkefni t.d:

  • Umgjörð leikja kvenna og karla (t.d. miðavörslu, klukkuborð, auglýsingar í búðir, uppstillingu auglýsingaskilta, kallkerfi á bíl, hljóðkerfi, þrif og kaffi eftir leik osframv.)
  • Þjóðhátíðarblað
  • Sjoppa og sjálfsala í íþróttamiðstöðinni
  • Happdrætti kvenna
  • Hádegismat kvenna á leikdegi
  • Hádegismat karla á leikdegi
  • Happdrætti karla
  • Leikskrá haustsins
  • Leikskrá vorsins
  • Umgjörð 2. flokks karla
  • Umgjörð unglingaflokks kvenna
  • Kleinusala
  • Bingó
  • Dósasöfnun
  • Fermingaskeyti
  • Fjölliðamót fyrir áramót (mótstjórn, dómgæsla, þrif á skólum, osfrmav.)
  • Fjölliðamót eftir áramót (mótstjórn, dómgæsla, þrif á skólum, osframv.)
  • Stuðningsmannaklúbburinn-Krókudílar
  • Barnagæsla á meðan leik stendur
  • Þrettándablað
  • Plakat karla
  • Annað

Við vonumst til að sjá sem flest á fimmtudaginn og að við náum að mynda góðan kjarna af fólki sem hefur áhuga að efla handboltann í Eyjum.

Fundurinn mun standa eigi lengur en fram að leik ÍBV og ÍA. Þannig að þetta verður létt klukkutíma spjall.

Handknattleiksráð ÍBV