Handbolti - Dregið í 16-liða úrslit VISA-bikarsins - Fylkir úti

19.jún.2006  10:43

Lærisveinar Leifs Garðarssonar knattspyrnuþjálfara, skólastjóra og körfuknattleiksdómara verða andstæðingar okkar í 16-liða úrslitum og skal leikið í Árbænum þann 3ja júlí kl. 19.15, ef ekkert breytist

16-liða úrslit í VISA bikarnum eru sem sagt orðin klár og Landsbankadeildarliðin eru komin inn í þetta. Eins fáránlegt og mér finnst þetta fyrirkomulag að lið úr efstu deild komi ekki inn fyrr en í 16-liða úrslitum þá er það engu að síður staðreynd. Finnst þetta personulega skrýtið fyrirkomulag vil sjá öll lið vera komin inn í 32 liða úrslitum og að allir geti mætt öllum ekkert svona hagræðingar system fyrir Landsbankadeildarliðin, en þetta var kosið yfir okkur á ársþingi KSÍ og við það situr.