Fótbolti - Allir á völlinn í kvöld ! Tekið á Víkingum kl. 19:15

28.maí.2006  14:14

Í kvöld kl. 19:15 verður flautað til leiks ÍBV og Víkings í 4. umferð Landsbankadeildar karla. Bæði lið hafa 3 stig og verma Víkingar 8. sætið en við Eyjamenn það 9 vegna lakari markatölu, svo það þarf ekki að fjölyrða frekar um mikilvægi þessa leiks. Strákarnir eru staðráðnir í því að landa 3 stigum og með góðum stuðningi á það að ganga upp. Hásteinsvöllur á að vera sú ljónagryfja þar sem við tökum stigin af andstæðingunum þótt það hafi mistekist gegn Valsmönnum. Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson.

STUÐNINGSMENN OG ALLIR EYJAMENN ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA Á VÖLLINN Í KVÖLD OG SÝNA STRÁKUNUM STUÐNING !!!

Fleiri leikir verða í Landsbankadeildinni í dag, en þá leika einnig Keflavík gegn KR og í kvöld leika Fylkismenn gegn Íslandsmeisturum FH.

Áfram ÍBV !