Fótbolti - STAR félagar sigurvegarar vorleiks 2006

19.maí.2006  07:27

Spennan magnast í bikarnum

Það voru þeir félagar í STAR sem tryggðu sér sigur í getraunaleiknum með 12 í síðustu umferð á meðan keppinautarnir náðu ekki nema í 10 rétta. Við óskum STAR félögum, Arnari Ingólfs og Stebba á Grund, til hamingju með frábæran árangur. Liðbandið náði öðrusætinu og Válí því þriðja. Einnig langarokkur að koma á framfæri þakklæti til annarra er þátt tóku í keppninni - við bíðum spennt eftir haustinu en ákveðið hefur verið að efna einnig til bikarkeppni á haustmánuðum þar sem mikill áhugi virðist vera fyrir þeirri keppni líka.

Þessi lið komust í 8-liða úrslit í bikarkeppninni:

Pörupiltar
Hamrarnir
2 á Toppnum
Synd að geit
Hebbi "Króati"
Sporðdrekarnir
Klaki
Dumb and Dumber


og þar mætast

Hamrarnir - Dumb and Dumber
Hebbi króati - Pörupiltar
Synd að geit - Klaki
Sporðdrekarnir - 2 á toppnum

leikið verður um helgina