Handbolti - Nýr þjálfari ráðinn hjá stelpunum

10.maí.2006  12:17

Einar Jónsson tekur við liðinu

Gengið hefur verið frá ráðningu Einars Jónssonar sem þjálfara mfl. og unglingaflokk kvenna fyrir næsta keppnistímabil.

Einar er 28 ára gamall og kemur úr Fram þar sem hann hefur alið manninn alla sína tíð sem leikmaður og þjálfari. Hann hefur verið að þjálfa yngri flokka kvenna sem karla sl. 6 ár hjá Fram. Undanfarin tvö ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari mfl. félagsins auk þess m.a. að sjá um einstaklingsþjálfun.

Einar stundar sem stendur nám í Kennaraháskólanum og er ólofaður og barnlaus að því best er vitað.

Við bjóðum Einar velkominn í ÍBV.