Handbolti - Allir í höllina í dag

30.apr.2006  12:56

Þinn stuðningur skiptir máli

Í dag leika stelpurnar okkar gegn Stjörnunni í undanúrslitum Deildarbikarsins. Við Eyjamenn verðum að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á stelpunum okkar ef við ætlum okkur að komast í úrslitin. Leikurinn hefst kl.16:15 og við hvetjum fólk til að mæta tímalega.

Þannig að nú verðum við Eyjamenn að fjölmenna í höllina í dag og styðja vel við bakið á stelpunum okkar. Mætum því öll í góða skapinu og höfum gaman að.