Fótbolti - Undanúrslit í deildarbikar á morgun, föstudag, kl 19 í Egilshöll

27.apr.2006  17:32

Eyjamenn og Keflvíkingar eigast við á morgun í Undanúrslitum í Deildarbikarkeppninni. Sigurvegararnir mæta svo FH þann 3. maí á Stjörnuvelli, ef ég man rétt. Reikna má með að það kosti kr. 500,- inn á leikinn á morgun og mun sú upphæð skiptast bróðurlega á milli þessara ágætu landsbyggðarfélaga.

Allir sem vettlingi geta á haldið eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á sínum mönnum - Áfram ÍBV alltaf alls staðar og að eilífð