Handbolti - Stjarnan-ÍBV í kvöld kl. 19:15

27.apr.2006  11:32

Í kvöld kl. 19:15 sækja stelpurnar okkar Stjörnuna heim í seinni leik liðanna í undanúrslitunm Deildarbikarsins. Eina sem bjargar okkar stúlkum frá því að tímabilið sé á enda er sigur. Það er vonandi að Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu mæti á leikinn og styðji við bakið á stúlkunum okkar.

Það er vonandi að þetta verði ekki boxkeppni eins og síðasti leikur og að tekið verði á t.d. peysutogi í þessum leik. Þannig að spilaður verði eðlilegur handboltaleikur.