Fótbolti - Herrakvöld Kn.deilda Víkings og ÍBV í Víkinni

15.mar.2006  17:50

Sameiginlegt Herrakvöld ÍBV og Víkings á höfuðborgarsvæðinu annan föstudag, þann 24. mars

Síðast var það fínt nú verður það enn glæsilegt. Að þessu sinni verðum við með sameiginlegt herrakvöld með vinum okkar í Víkingi, föstudaginn 24. mars n.k. Við verðum í íþróttasalinn í Víkinni og fjölmennum.
Verið er að vinna í dagskránni en búið er að fastsetja og ákveða nokkur atriði. Þau verða eftirfarandi:

Veislustjóri Hermann Gunnarsson hinn eini sanni.
Skemmtiatriði: Jóhannes Kristjánsson eftirherma.
Skemmtiatriði: Bogomill Font
Sögur úr boltanum óvænt.
Happdrætti
Uppboð : Boðnar verða upp áritaðar peysur okkar fræknustu atvinnumanna.
Enn er verið að vinna í dagskránni og öðrum frekari undirbúningi, nánari uppl. verður komið hér á framfæri síðar - stuðnignmenn liðanna og aðrir velunnarar skemmtilegra kvöldstunda, hér er tækifærið til að kynnast alvöru skemmtun. Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu nú er um að gera og fjölmenna og sýna að við séum fjölmennari á höfuðborgarsvæðinu en Víkingar.

F.h. leikmanna ÍBV Atli Yo

fréttatilkynning