Fótbolti - Anton með sitt fyrsta mfl. mark

25.feb.2006  10:19

Jafntefli í Árbænum
Lið ÍBV og Fylkis gerðu jafntefli á gervigrasinu í Árbæ í gærkvöldi 1-1. Eyjólfur Héðinsson kom Fylkismönnum yfir en í síðari hálfleik jafnaði Anton Bjarnason metin eftir skemtmilegan undirbúning okkar manna. Úrslitin því viðunandi jafntefli, þó nokkuð var um förföll hjá okkur í þessum leik en byrjunarliðið var þannig skipað.:
Hrafn
Adólf - Davíð Egils. - Binni - Ingi Rafn
Jeffsy - Atli
Bjarni Rúnar
Egill - Anton
Alli
inná komu svo: Birkir Hlyns, Hafþór og Einar Kristinn

Það er engin leikur um næstu helgi en þann 8. mars er æfingaleikur við Hauka og svo er leikur við Víkinga frá Ólafsvík þann 12. mars. Chris Varenkamp og Ryan Martin koma til landsins þann 6. mars og það er spurning hvort að Ryan verði komin með leikheimild gegn Víkingum og fái þá tækifæri til að sanna sig, en hann mun pottþétt spila gegn Haukum.

Leikmenn ætla að koma til Eyja um næstu helgi í fjáröflunarverkefni fyrir æfingaferðina og hyggjast þeir bóna bíla - þeir munu auglýsa það svo á spjallinu´þegar nær dregur