Fótbolti - Dapurt í Garðabænum

14.feb.2006  13:31

1-3 tap gegn Stjörnunni

Leikmenn ÍBV riðu ekki feitum hesti frá viðureigninni gegn Stjörnunni í Garðabæ í gærkvöldi. Niðurstaðan var 3-1 tap og fengu menn á sig öll mörkin á 7 mínútna kafla í fyrrihálfleik. Það var svo Ian Jeffs sem minnkaði muninn fyrir okkar menn með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu - sláin inn.
Annars er lítið um leikinn að segja. Júgóslavneskur markmaður spilaði með okkur annan hálfleikinn til reynslu og mun hann fá annað tækifæri síðar.
David Maier kemur til landsins þann 13 mars til æfinga með liðinu og Ryan Martin kemur að öllum líkindum með Chris Vorenkamp þegar hann kemur þann 6. mars næst komandi.