Handbolti - Sunnudag kl. 13:30

04.feb.2006  16:26

Valur kemur með Herjólfi í kvöld

HSÍ hefur orðið við kröfu Vals um að leikurinn sem átti að fara fram í dag skuli fara fram á morgun kl 13:30. Við vonum að Eyjamenn velji leikinn hjá stúlkunum frekar en sjónvarpið en lýsum samt sem yfir mikilli furðu að leikurinn hafi ekki verið settur á kl 18:00 á morgun. En HSÍ varð því miður ekki við kröfu ÍBV um það þar sem að það hentaði Val ekki. Við hvöttum HSÍ til að reyna annað kvöld með leikinn og á mánudegi ef ófært yrði á morgun. Það hentaði Valsstúlkum ekki og e.t.v. er það vegna þess að lykilmenn liðs okkar séu meiddar þessa dagana?