Fótbolti - Fannar, Birkir og Egill áfram á úrtaksæfingum

24.jan.2006  12:03

Verið var að boða á æfingar hjá æfingahópum fyrir U-17 og U-19 landsliða karla. Þeir félagar Birkir Hlynsson og Egill Jóhannsson hafa verið valdir til áframhaldandi æfinga með hópnum hjá U-19. Guðni Kjartansson hefur boðað á æfingu í Reykjaneshöll á laugardag kl. 14:30 en í Egilshöll kl. 9 á sunnudagsmorguninn - kemur sér vel að okkur strákar eru morgunhressir með eindæmum. Fannar á að mæta á æfingar í Reykjaneshöll á laugardag kl. 13.00 og svo í Fífunni á sunnudag kl. .13. Þjálfari U-17 er Lúka Kostic Við óskum peyjunum góðs gengis á æfingunum.